HEIM | SETJA INN AUGLÝSINGU | NÝJUSTU AUGLÝSINGARNAR | NÝSKRÁNING | LEITA Í AUGLÝSINGUM | INNSKRÁ |
 
(Leita í auglýsingum)
SMÁAUGLÝSINGAR:
Atvinna (17)
Bátar og búnaður (75)
Bílar og vinnuvélar (149)
Bókhald (1)
Byggingavörur (20)
Bækur og tímarit (4)
Dulspeki, spádómar (3)
Dýrahald (15)
Fatnaður (9)
Ferðalög og gisting (9)
Fyrir börnin (7)
Heilsa og lífstíll (23)
Heimili og garður (13)
Heimilistæki (22)
Hjólhýsi (9)
Hljóðfæri, hljómtæki (20)
Húsgögn (40)
Húsnæði, fasteignir (32)
Internetið (2)
Íþróttavörur (9)
Landbúnaður (13)
List og handverk (1)
Loftnetsþjónusta (1)
Mótorhjól, reiðhjól (30)
Myndavélar, símar (6)
Nám og námskeið (4)
Óskast (31)
Safnarar (5)
Skrifstofan (1)
Til sölu (33)
Tjaldvagnar, fellihýsi (10)
Tónlist, DVD, leikir (1)
Tölvur og búnaður (21)
Útivera, veiði (5)
Varahlutir (10)
Vélar, verkfæri (12)
Ýmislegt (16)
Þjónusta (15)
- Myndaauglýsingar
- Skoða allar myndir
- Til notenda Hanans
- Ábending
- Augl.verðskrá
- Spurningar og svör
- Týnt lykilorð?

- SagaClips.com



Pantaðu gæða harðfisk úr fersku hráefni

Formula 1 Express hollustustangir. Hentug máltíð í erli dagsins

Brattur.is ný vefverslun
með mjög hagstæð verð
og viðurkenndar vörur

Kawasaki 300 til sölu árg. 1987, nýr raf- geymir, ný dekk. Tilboð

Netsjonvarp.com
Loksins á Íslandi
Sjáðu Sýnishornið!

Hringstigi (beykiþrep) til sölu, stillanleg hæð

Haninn.is - Smáauglýsingar :: Ábendingar til auglýsenda
1) Mynd segir meira en þúsund orð
Við hvetjum auglýsendur til að senda alltaf inn mynd með auglýsingum sínum þegar það á við. Auglýsing með viðeigandi mynd færir lesendur nær efni auglýsingarinnar og eykur því sannanlega virkni hennar og er um leið áhugaverðari lesning. Auðvelt er að setja inn mynd í myndlausa auglýsingu sem þegar hefur verið send inn. Skráðu þig inn með aðgangsorðum þínum og smelltu á tengilinn BREYTA við þá auglýsingu sem þú hyggst breyta og fylgdu síðan leiðbeiningum á síðunni. Ef þú lendir í vandræðum, þá getur þú sent okkur lýsingu á vandamálinu og við athugum hvað hægt er að gera.

2) Vantar efnisflokk fyrir þína auglýsingu?
Ef þér finnst vanta efnisflokk á vefsíðuna Haninn.is fyrir þína auglýsingu eða þú hefur ábendingu um hvað má betur fara, biðjum við þig endilega að senda okkur tölvupóst á haninn@haninn.is og við munum skoða málið.

3) Haninn.is leyfir EKKI birtingu á klámfengnu efni.
Öllum innsendum auglýsingum af slíku tagi og öðrum auglýsingum sem kunna að misbjóða lesendum okkar verður tafarlaust eytt og vefsvæði viðkomandi lokað án frekari viðvörunar.

4) Birting auglýsinga um fjárhættuspil og skylda starfsemi er bönnuð á Haninn.is
Auglýsingar um alls kyns fjárhættuspil, s.s. veðmál, póker og fleira af því tagi, þar sem spilað er um peninga, eru stranglega bannaðar á Haninn.is. Þar með eru talin hvers kyns hjálparforrit til slíkrar iðkunnar. Slíkar auglýsingar geta brotið í bága við íslensk lög um happdrætti, auk þess sem bannað er að auglýsa fjárhættuspil sem ekki eru leyfi fyrir hér á landi.
Í almennum hegningarlögum segir að "sá sem gerir sér fjárhættuspil að atvinnu eða kemur öðrum til þátttöku í þeim, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári."
Öllum innsendum auglýsingum af slíku tagi verður tafarlaust eytt og vefsvæði viðkomandi lokað án frekari viðvörunar.

5) Mánaðarlegt fréttabréf til skráðra notenda
Við áskiljum okkur rétt til að senda skráðum notendum vefsíðunnar Haninn.is mánaðarlegt fréttabréf með ýmsum upplýsingum og kynningarefni varðandi starfsemina. Notendur geta hins vegar afskráð sig ef þeir óska ekki eftir að fá sent fréttabréf Hanans.

6) Fjöldabirtingar á sömu auglýsingunni bannaðar
Fjöldabirtingar á sömu auglýsingunni á sama tíma eru stranglega bannaðar á Hananum. Aðeins er heimilt að hafa eina auglýsingu af hverri tegund í birtingu á hverjum tíma og þá í viðeigandi efnisflokki. Fjöldaauglýsingum af þessu tagi verður tafarlaust eytt og vefsvæði viðkomandi lokað við ítrekuð brot.

7) Auglýsingar frá "pýramídafyrirtækjum" bannaðar
Allar auglýsingar frá svonefndum "pýramída" og "get-rich-quick scheme" fyrirtækjum eru bannaðar á Hananum. Tengingar við erlendar vefsíður slíkra fyrirtækja eru óheimilar. Við teljum slíkar auglýsingar bæði óæskilegar og hvimleiðar og bjóða jafnframt upp á misnotkun á þjónustu okkar. Slíkum auglýsingum verður tafarlaust eytt og vefsvæði viðkomandi lokað.

8) Hverjum notanda er aðeins heimilt að skrá sig undir einu netfangi
Hverjum notanda er stranglega bannað að skrá sig undir fleirum en einu netfangi á Hananum. Verði notandi uppvís að slíku telst það misnotkun á þjónustu okkar og varðar viðkomandi útilokun og lokun á vefsvæði hans.

9) Stranglega er bannað að auglýsa vín eða tóbak á Haninn.is
Samkvæmt landslögum er bannað að auglýsa vín eða tóbak og gildir það að sjálfsögðu einnig um slíkar birtingar á Haninn.is. Auglýsingum af því tagi verður tafarlaust eytt og vefsvæði viðkomandi lokað.




Allur réttur áskilinn © 2005-2010 Haninn.ishaninn@haninn.is